Hugbúnaður, markaðsmál og rekstur

A-hliðArnheiður JóhannsdóttirMarkaðsmál og rekstur

B-hliðBaldur JónssonHugbúnaður og tækni

Við hjá abla smíðum hugbúnað, mótum vörumerki og styðjum fyrirtæki í rekstri og vexti.

Tvö fög, eitt fyrirtæki. Annað okkar kemur úr markaðsmálum og rekstri, hitt úr forritun og tækni. Þess vegna er hægt að leita til okkar hvort sem þig vantar app, vef, vörumerki eða viðskiptaáætlun, eða þetta allt í einu.

Nafnið er borið fram eins og „afla“. Það á ágætlega við: við hjálpum fyrirtækjum að afla viðskiptavina, tekna og þekkingar.

Við gefum líka út okkar eigin vöru

port-id er app til skráningar og greiðslu í mötuneytum. Það fór í loftið haustið 2026 í MA og VMA.

Við smíðuðum það, rekum það og þjónustum. Það sem við lærum þar nýtist í öllu sem við gerum fyrir aðra.

port-id

Skráning og greiðsla í mötuneytinu

  • Matarkort og áskriftir í símanum
  • Matarpassinn skannaður þegar maturinn er sóttur
  • Yfirlit fyrir nemendur og forráðafólk

Tæknin og viðskiptin tala saman

Hjá okkur situr forritarinn við sama borð og markaðs- og rekstrarfræðingurinn. Lausnirnar verða betri þegar þær eru skoðaðar frá báðum hliðum allt frá fyrsta degi.

  1. Frá hugmynd að vöru

    Við komum að verkefnum á öllum stigum: greinum markaðinn, mótum vörumerkið, smíðum lausnina og sjáum svo um reksturinn.

  2. Reynsla af eigin rekstri

    Við þróum og rekum okkar eigin vöru, port-id, og þekkjum því af eigin raun hvað þarf til að reka hugbúnað í áskrift.

  3. Stuttar boðleiðir

    Þú talar beint við fólkið sem vinnur verkið. Engir milliliðir og ekkert sem týnist á leiðinni.

Arnheiður Jóhannsdóttir

Markaðs- og rekstrarráðgjöf

Arnheiður er alþjóðamarkaðsfræðingur og rekstrarfræðingur með yfir 25 ára reynslu af framkvæmdastjórn, markaðsmálum og uppbyggingu fyrirtækja.

arnheidur@abla.is

Baldur Jónsson

Hugbúnaður og tækni

Baldur er forritari, tæknisérfræðingur og sölumaður með mikla reynslu af kerfisþróun, tæknilausnum og sölu.

baldur@abla.is

Ertu með hugmynd eða verkefni?

Segðu okkur frá því og við finnum næstu skref saman, hvort sem þig vantar app, vef, vörumerki eða viðskiptaáætlun.

Hafa samband